top of page
Untitled (Instagram Post (Square)) (Presentation (169)) (Facebook Cover).png

HÆ! VERTU VELKOMIN

.

Minn tilgangur í þessu lífi er að hjálpa eins mörgum og ég get að finna sína stefnu og ástríðu í lífinu og a´sama tíma bæta fjárhagslega, andlega og líkamlega heilsu sína.

Ég er viðskiptafræðingur, markþjálfi, fyrirtækjarekandi, einkaþjálfari, eiginkona, mamma, vinkona og margir aðrir mis-nauðsynlegir hattar.

Ég vil hjálpa þér, að hjálpa þér.

Hvað þýðir það? 

Jú með markþjálfun... þá getum við töfrað ýmislegt upp saman....

HVAÐ ER MARKÞJÁLFUN?

Markþjálfun er samtalsmeðferð fyrir alla þá sem vilja stækka, ná meiri árangri og finna meiri staðfestu í sjálfum sér. Hún snýst um að hjálpa þér að finna þína leið að þínu markmiði, vera stuðningur og hjálpa þér að styrkja þig í þínu sjálfi.

Mér finnst auðveldasta lýsingin á markþjálfun að við erum hreinlega að leysa úr hugsanaflækjum saman og finna hvað skiptir þig mestu máli

Við göngum í gegnum allskonar breytingar yfir allt lífið, stórar sem smáar, sama hvort við kjósum það eða ekki. Markþjálfun snýst um að hjálpa þér að taka næsta skref í átt að stóru myndinni með auknu sjálfstrausti og öryggi. Hvort sem það er að skrá þig í nám, skipta um starf, taka ábyrgð á fjárhagnum þínum, breyta um lífsstíl, hugarfar eða hvað annað kemur upp.

Hvernig hljómar aukið sjálfstraust varðandi fjármálin þín, meiri skilningur á neysluhegðun þinni og skýr markmið varðandi framtíðina? 

Það er það sem ´Lets talk about money baby´ snýst um

LTAMB er þriggja mánaða prógram þar sem ég hef týnt það besta úr 10 ára reynslu minni sem verslunar- og rekstrarstjóri í sambland við markþjálfun og viðskiptafræði til þess að kenna þér á fjármálin þín, bæta sjálfstraust þitt og gefa þér þau verkfæri sem þú þarft til þess að halda áfram sjálf/ur eftir þessa 3 mánuði og rúlla upp markmiðunum þínum.

Viltu fá póst frá mér um tilboð eða ný námskeið?

Takk fyrir!

bottom of page